top of page

LJÓSMYNDARINN

    Nökkvi heimasida portret.jpg

    Erlingur Nökkvi Elíasson (f. 2. desember 1966) er íslenskur ljósmyndari sem hefur að mestu leyti einbeitt sér að svart / hvítum ljósmyndum af eyðibýlum og öðrum yfirgefnum mannvirkjum.

    Nökkvi er fæddur þann 2. desember árið 1966 á Sauðárkróki og hóf sinn ljósmyndaferil upp úr 1987 en hefur nær eingöngu myndað eyðibýli og önnur yfirgefin hús síðustu árin. Verk hans hafa birst meðal annars á bókarkápum og í dagblöðum og tímaritum, hér heima og erlendis.

    Nökkvi hefur haldið tvær sýningar á verkum sínum. Annars vegar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur og svo hins vegar í Pakkhúsinu á Höfn í Hornafirði.

    Nökkvi hefur gefið út 5 bækur í samstarfi við Aðalstein Ásberg Sigurðsson, rithöfund, ljóðskáld, tónlistarmann og útgefanda, þar sem þemað eru eyðibýli, ljóð og ljósmyndir.

    Nökkvi er sonur Elíasar Halldórssonar myndlistarmanns og Ásthildar Ísidóru Sigurðardóttur. Bræður hans eru Gyrðir Elíasson rithöfundur, ljóðskáld og málari og Sigurlaugur Elíasson ljóðskáld og myndlistarmaður.

    © 2022 Nökkvi Elíasson photography. All Rights Reserved. All photographs are the copyrighted property of Nökkvi Elíasson and may not be reproduced in any form without permission.

    bottom of page