LJÓSMYNDARINN

Nökkvi Elíasson er fæddur þann 2. desember árið 1966 á Sauðárkróki og hóf sinn ljósmyndaferil upp úr 1987. Hann hefur að mestu leyti einbeitt sér að svart/hvítum ljósmyndum af eyðibýlum og öðrum yfirgefnum mannvirkjum. Hin seinni ár hefur hann hins vegar nær alfarið tekið myndir af mannlífi og hinum ýmsu dýrategundum. Verk hans hafa birst meðal annars á bókarkápum og í dagblöðum og tímaritum, hér heima og erlendis.
Hann hefur haldið tvær sýningar á verkum sínum. Annars vegar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur og svo hins vegar í Pakkhúsinu á Höfn í Hornafirði. Nökkvi hefur gefið út 5 bækur í samstarfi við Aðalstein Ásberg Sigurðsson, rithöfund, ljóðskáld, tónlistarmann og útgefanda, þar sem þemað eru eyðibýli, ljóð og ljósmyndir.
Nökkvi er sonur Elíasar Halldórssonar myndlistarmanns og Ásthildar Ísidóru Sigurðardóttur. Bræður hans eru Gyrðir Elíasson rithöfundur, ljóðskáld og málari og Sigurlaugur Elíasson ljóðskáld og myndlistarmaður.